Jæja dömur mínar
það hefur verið í umræðunni hjá þeim sem halda
uppi þessari síðu
að fara út að borða þegar Edda útlandafari
kemur á klakann. Hugmyndin var að fara á Caruso en það er sætur
staður með fínu úrvali af mat á góðu verði. Það væri gott að fá að
vita hverjar ætla með svo hægt sé að panta borð. Er ekki alveg
komin með dagsetninguna á hreint en þetta verður líklegast á milli
jóla og nýárs. En endilega COMMENTIÐ og látið vita hverjar vilja
koma með.
En yfir í annað...
Ég og Auður fórum í afmæli til Óla seinust helgi
og var bara ansi gaman. Ég, Auður, Guðrún H og vinkona hennar fórum
svo í bæinn n.t. á Hverfis, það var skítaveður en mjög gaman hefði
samt viljað dilla aðeins á mér rassinum en það verður að bíða betri
tíma. TAKK FYRIR MIG STELPUR.
Það er annars ekki mikið að frétta af manni þessa
dagana, maður er náttla með nefið á bólakafi í námsbókumum um
þessar mundir og á sér því ekki mikið líf en þetta verður búið
11.des. GET EKKI BEÐIÐ
En jæja það er ekki fleira að frétta.......eða
HALLÓ frétt ársins er auðvitað sú að ég er að fara að halda upp á
árs afmæli Ívans Elí. VÁÁÁ trúiðið hvað tíminn er fljótur að
líða??? Trúi því varla en það er víst staðreynd
Ætla að halda
upp á það aðeins fyrr útaf prófunum og svolleiðis, langar að vera í
fríi eftir próf. EN ég er búin að kaupa allar
jólagjafir þannig að ég verð bara í slökun fram að jólum eftir
prófin. BARA LJÚFT
KOSS og TILHLÖKKUNARKVEÐJUR
Íris mamma til eins árs